K.G. fiskverkun, félag í eigu Hjálmars Þórs Kristjánssonar stjórnarsmanns í Vinnslustöðinni, hefur keypt í Vinnslustöðinni fyrir 1,4 milljónir króna, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er að ræða 170.399 hluti, keypta á genginu 8,5.

Stilla ehf., félag í eigu Guðmundar Kristjánssonar og Hjálmars Kristjánssonar, hefur ákveðið að leggja fram samkeppnistilboð í allt hlutafé Vinnslustöðvarinnar hf. vegna fram komins skyldutilboðs Eyjamanna ehf. til yfirtöku á félaginu til hluthafa í Vinnslustöðinni hf. sem kom fram 9. maí og gildir frá 13.maí 2007 til 11. júní 2007.