Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hvetur Gunnar Braga Sveinsson til dáða í Norðvesturkjördæmi þó þeir félagar séu ekki lengur í sama flokki. Sigmundur játar því þó að það geti verið vatn á myllu framboðsins sem hann hyggst stofna til ef Gunnar Bragi verði felldur að því er segir í Fréttablaðinu.

„Já, það má kannski segja það,“ segir Sigmundur Davíð en listi flokksins verður valinn í kjördæmaþingi þann 8. október næstkomandi. „Hins vegar þætti mér það engu að síður mjög rangt og ósanngjarnt ef þeim tekst það ætlunarverk með Gunnar Braga ef hann hefur áhuga á að halda áfram í flokknum.“

Sigmundur segist í meginatriðum vera sammála Birna Inga Hrafnssyni og röksemdum hans fyrir stofnun nýs framboðs og útilokar ekki að vinna með honum í komandi kosningum.