Á mánudaginn hefst hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Að þessu sinni er hún unnin í samstarfi við Æskuna barnahreyfingu IOGT og Íslenska fjallahjólaklúbbinn. Þetta er í þriðja sinn sem staðið er fyrir söfnun á notuðum reiðhjólum fyrir börn og unglinga, en söfnunin stendur til 15. júní.

Hjólunum verður safnað á endurvinnslustöðvum Hringrásar og Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. Þau verða gerð upp og eru ætluð börnum sem ekki hafa kost á því að kaupa sér reiðhjól. Hægt er að sækja um hjól hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og í Reykjanesbæ.

Hjólin verða gerð upp af sjálfboðaliðum undir styrkri stjórn sérfræðinga í reiðhjólaviðgerðum á vegum Íslenska fjallahjólaklúbbsins og Æskunnar, barnahreyfingar IOGT. Þau verða síðan afhent í júní. Á facebook-síðu hjólasöfnunarinnar getur fólk fylgst með og skráð sig til þátttöku í viðgerðum.