Ford Explorer jeppi ársins (Truck of the year) í Bandaríkjunum 2011.
Ford Explorer jeppi ársins (Truck of the year) í Bandaríkjunum 2011.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Nýskráningar bíla í janúar–júlí 2011 voru 4.008 miðað við 2.684 í janúar–júlí árið áður, þ.e. 49,3% aukning frá fyrra ári. Síðastliðna 12 mánuði, til loka júlí, voru nýskráningar bíla 5.001 en það er 47,9% fjölgun frá fyrra tólf mánaða tímabili.

Flestar nýskráningar bíla það sem af er ári var í júní en þá voru nýskráningarnar 1.293. Er það mesti fjöldi nýskráninga á einum mánuði frá því eftir hrun. Í júlí voru nýskráningar 515.