Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar, hefur ákveðið að hætta hjá fyrirtækinu 30. apríl næstkomandi. Hann hefur stýrt fjármálasviðinu í 12 ár. Við starfi hans um þarnæstu mánaðamót tekur Sveinn Sölvason.

Fram kemur í tilkynningu frá Össuri að Sveinn hóf stórf hjá fyrirtækinu árið 20090. Hann er með gráðu í fjármálum og endurskoðun frá Copenhagen Business School. Áður vann Sveinn hjá Marel en þar áður hjá Kaupþingi, Goldman Sachs og HSH-Nordbank.