Hjörleifur B. Kvaran var skipaður forstjóri Orkuveitunnar á fundi sem lauk í hádeginu.

Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins.

Þar segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður að samstaða hafi verið um Hjörleif í stjórninni.

Hjörleifur hefur gegnt stöðu forstjóra Orkuveitunnar frá 1.september í fyrra.

Átján sóttu um starf forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur.