Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi ráðherra segir þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar, um að draga til baka umsókn að Evrópusambandinu, líklegast vera merkasta áfangann í sjálfstæðismálum þjóðarinnar frá lýðveldisstofnun. Þetta segir Hjörleifur í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið
„Tillagan sem nú liggur fyrir Alþingi nýtur stuðnings meirihluta þingmanna ríkisstjórnarflokkanna og ólíklegt verður að teljast að þingflokkur VG í heild gangi gegn tillögu sem er í samræmi við yfirlýsta stefnu flokksins frá upphafi,“ segir Hjörleifur í greininni.
Hjörleifur segir að samþykkt naums meirihluta á Alþingi sumarið 2009 um að sækja um hafi verið „illa fenginn“ og forsendurnar óljósar. „Gefið var í skyn að hægt væri að semja við ESB um fjölmörg atriði, nánast eins og menn væru að ganga inn í kjörbúð,“ segir Hjörleifur.