Nýr hótelstjóri, Hjörtur Valgeirsson, hefur verið ráðinn á Fosshótel Reykjavík á Höfðatorgi sem er stærsta hótel landsins með alls 320 herbergi auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Einnig rekur hótelið Bjórgarðinn og hinn rómaða veitingastað, Haust Restaurant. Fosshótel Reykjavík er rekið af Íslandshótelum og er eitt af 17 hótelum sem keðjan rekur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hótelinu.

„Hjörtur lauk BA í hótelstjórnun árið 2003 í South Bank University Business School, Englandi og útskrifaðist með MBA úr Vlerick Management School í Belgíu árið 2010.

Hjörtur hefur starfað við hótelrekstur frá árinu 2004 og meðal annars stýrt Eddu hótelunum fyrir Icelandair Hotels. Á árunum 2011-2014 starfaði Hjörtur í Kína sem rekstrarstjóri The Bookworm Cafe í Chengdu og svo rak hann Greencompass & Studio Moderna í Shanghai. Einnig hefur Hjörtur starfað á Hilton Reykjavík Nordica, Como Hotels and Resorts – The Halkin London og Crowne Plaza London. Síðustu 2 ár hefur Hjörtur verið hótelstjóri á Centerhotel Þingholti auk þess að stýra Ísafold Restaurant og Ísafold Spa,“ segir í tilkynningunni.

Íslandshótel rekur 17 hótel með yfir 1.700 gistirými um land allt. Þetta eru Grand Hótel Reykjavík, Hótel Reykjavík Centrum og 15 Fosshótel hringinn í kringum landið.