Athygli ehf. hefur tekið við útgáfu vefmiðilsins kvotinn.is, sem sérhæfir sig í skrifum um sjávarútveg. Jafnframt hefur Hjörtur Gíslason verið ráðinn til Athygli sem ritstjóri vefmiðilsins en hann hefur gengt því starfi frá árinu 2013. Hjörtur mun jafnframt skrifa viðtöl og greinar í Ægi og Sóknarfæri sem Athygli gefur út.

„Það voru ákveðin tímamót á sínum tíma að hefja störf við útgáfu fréttavefjar um sjávarútveg, þó viðfangsefnið sem slíkt væri mér mjög vel kunnugt. Það eru líka ákveðin tímamót að ganga nú til liðs við öflugt útgáfufyrirtæki og styrkir það útgáfu kvotans.is til framtíðar að verða hluti af Athygli í fjölbreyttri útgáfu. Ég sé fyrir mér að kvotinn.is muni eflast og dafna í góðum félagsskap og það þykir mér mjög vænt um.“ Segir Hjörtur Gíslason.