Hjörvar Hafliðason var í dag ráðinn dagskrárstjóri Stöðvar 2 sport.  Emilía Sighvatsdóttir, sem hefur verið yfirmaður á Stöð 2 sport, lætur samstundis af störfum, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Hjörvar hefur verið dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 sport um skeið og einnig íþróttafréttamaður.