Vísitala launa er 120,2 stig á öðrum ársfjórðungi 2007 og hækkaði um 1,4% frá fyrri ársfjórðungi að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar. Vísitala launa á almennum vinnumarkaði hækkaði um 1,5% á sama tímabili og vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn um 1,1%.

Árshækkun vísitölu launa var 10,6% á öðrum ársfjórðungi 2007, 11,7% á almennum vinnumarkaði og 8,1% hjá opinberum starfsmönnum.

Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest hjá sérfræðingum, 2,5% en minnst hjá iðnaðarmönnum, 0,7%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest frá öðrum ársfjórðungi 2006 eða um 13,2% en regluleg laun iðnaðamanna hækkuðu minnst, 9,8%.

Ársfjórðungshækkun reglulegra launa var mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) eða 3,0% en minnst var hækkunin í iðnaði (D), 0,6%. Frá öðrum ársfjórðungi 2006 hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) mest eða um 15,0% en minnst var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G), 10,4%.