Hlutabréf hafa hækkað það sem af er degi í Bandaríkjunum en nú er um hálftími síðan opnað var fyrir viðskipti á Wall Street.

Þannig hefur Nasdaq hækkað um 1,6%, Dow Jones um 1,7% og S&P 500 um 1,8%.

Að sögn Reuters fréttastofunnar eru fjárfestar bjartsýnir á að Bandaríkjaþing samþykki björgunaraðgerð ríkisstjórnarinnar sem meðal annars felur í sér að dæla um 700 milljörðum dala í umferð.

Í Evrópu hafa markaðir einnig hækkað og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan hækkað um 1% það sem af er degi.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan hækkað um 0,9%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan einnig hækkað um 0,9% en í Frankfurt hefur DAX vísitalan hækkað um 1,5%.

Í París og í Sviss  hafa CAC 40 og SMI vísitölurnar hækkað um 2,1%.

Sólin skín þó ekki jafn skært á Norðurlöndunum því í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,1% og í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 1,3%.

Í Stokkhólmi hefur OMXS vísitalan þó hækkað um 1,6%.