Hækkanir urðu á Bandaríkjamarkaði í dag.

Wal-Mart tilkynnti um aukna sölu og hafði það jákvæðar afleiðingar í för með sér.

Atvinnuleysi í vikunni virðist einnig hafa minnkað.

Nasdaq vísitalan hækkaði um 1,02 %, Dow Jones hækkaði um 0,76% og Standard & Pours hækkaði um 0,73%

Olíuverð hækkaði um 3,85% í kjölfar ólgu á olíumarkaði. Olíutunnan kostar nú 141,29 Bandaríkjadali.