Hækkanir urðu á Bandaríkjamarkaði í dag eftir að jákvæðar sölur af smásölu voru birtar í morgun.

Bæði bankar og stórmarkaðir hafa hækkað í dag.

Nasdaq vísitalan hækkaði í dag um 0,43%, Dow Jones hækkaði um 0.48% og Standard & Poor´s hækkaði um 0,33%

Olíuverð hækkaði um 0,24% og selst nú olíutunnan á 136,71 bandaríkjadali.