Væntingar um stýrivaxtalækkun í Bandaríkjunum auk jákvæðra frétta af uppgjörum Goldman Sachs og Lehman Brothers gerðu það að verkum að hlutabréf hækkuðu í Evrópu í dag.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 3,4% eftir að hafa lækkað um 4,4% í gær.

Þá hækkaði FTSE100 vísitalan í Lundúnum um 3,5%, DAX vísitalan í Frankfurt um 3,4% og CAC 40 vísitalan í París hækkaði einnig um 3,4%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMX vísitalan um 3% og í Osló hækkaði OBX vístalan um 1,7%.