Greiningardeild Glitnis hefur hækkað verðmatsgengið á Bakkavarar Group í 75,0 krónur á hlut úr 68,4. Verðmatsgengið er talsvert yfir gengi á markaði eða 68,2.

?Ráðlegging okkar til fjárfesta er að kaupa bréf í félaginu. Markgengi (e. target price) er 75,0 en það er spá okkar um hvar gengi bréfa í félaginu standi að sex mánuðum liðnum. Helstu ástæður fyrir hækkuðu verðmatsgengi eru hækkun tekna á spátímabilinu og lækkuð fjármagnsgjöld,? segir greiningardeildin.