Asísk hlutabréf hækkuðu þriðja daginn í röð í dag. Bankar og flugfélög fóru fyrir hækkunum dagsins.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 1,5% í dag.

Japanska Nikkei vísitalan hækkaði um 1,0% og kínverska Hang Seng vísitalan hækkaði um 2,7%.

Þá hækkaði Singapore Straits vísitalan um 3,1%.