Hækkun varð á markaði vestan hafs í dag. Orkufyrirtæki hækkuðu, en þau bréf þeirra hafa ekki verið ódýrari í 18 mánuði en þau voru í dag. FedEx kynnti betri afkomu en spáð hafði verið og jók enn á bjartsýni manna í dag.

Nasdaq vísitalan hækkaði í dag um 0,9%. Dow Jones hækkaði um 0,3% og Standard & Poor´s hækkaði um 0,6%.

Olíuverð lækkaði í dag, um 0,3% og kostar olíutunnan nú 103,0 Bandaríkjadali.