Hlutabréf í Bandaríkjunum hækkuðu að jafnaði í dag, eftir að hækkun fjármálafyrirtækja vann upp áhrif lækkandi væntingavísitölu og minni sölu Microsoft.

Nasdaq vísitalan lækkaði þó í dag um 0,25% á meðan Dow Jones hækkaði um 0,33% og Standard & Poor´s hækkaði um 0,65%.

Olíuverð hækkaði einnig í dag um 2,29% og er nú 118,72 Bandaríkjadalir á tunnu.