Hlutabréf hækkuðu í Evrópu í dag en hækkun dagsins var þó ekki mikil.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,2% en vísitalan lækkaði um 12,7% í október og að sögn Reuters er það versti einstaki mánuðurinn í um sex ár.

Þá hefur hún lækkað um 40% það sem af er þessu ári.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,5%, í Amesterdam hækkaði AEX vísitalan um 2% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 0,8%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 1,2% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 1,3%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 1,7%, í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 4,6% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 4%.