Hlutabréfavísitölur hafa hækkað lítillega í Bandaríkjunum en markaðir hafa verið opnir á Wall Street í rúmlega klukkustund.

Nasdaq stendur að vísu í stað eftir að hafa sveiflast í kringum núllið en Dow Jones hefur hækkað um 0,4% og S&P 500 um 0,6%.

Bloomberg fréttaveitan segir fjárfesta hafa trú á svokölluðum björgunaraðgerðum bandarískra yfirvalda og sjái því fram á bjartari tíma á mörkuðum.

Annað er þó upp á teningnum í Evrópu þar sem allir markaðir hafa lækkað í dag. Þó hefur dregið úr lækkuninni frá því í morgun.

Þannig hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 1% það sem af er degi og eru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiða lækkanir dagsins.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 1,2%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 1,3% en í Frankfurt stendur DAX vísitalan í stað eftir að hafa lækkað í morgun um 0,9%.

Í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 1,1% og í Sviss hefur SMI vísitalan lækkað um 0,8%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 1,9%, í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 0,5% og í Stokkhólmi hefur OMXS vísitalan lækkað um 1,8%.