Hækkun varð á Wall Street í fyrsta sinn í þrjá daga í dag. Væntingar um stýrivaxtalækkun spiluðu stórt hlutverk í að auka bjartsýni fjárfesta, en tölur um aukið atvinnuleysi og fréttir af slæmri stöðu General Motors vógu ekki jafn þungt og væntingar um vaxtalækkun.
Þetta kemur fram í frétt Bloomberg.
Gengi bréfa Exxon, stærsta olíufélags Bandaríkjanna, hækkaði um 6,3% og gengi bréfa Alcoa hækkaði um 9,1%.
Bréf General Motors lækkuðu aftur á móti um 9,2%.
Nasdaq vísitalan hækkaði um 2,4% í dag. Dow Jones hækkaði um 2,9% og Standard & Poor´s hækkaði einnig um 2,9%.
Olíuverð hækkaði lítillega í dag, um 0,3% og kostar olíutunnan nú 61,0 Bandaríkjadal.