Hlutabréf á Wall Street hækkuðu við opnun markaða í dag. Bjartsýni gætir meðal fjárfesta en nýjar hagtölur um efnahag Kína sýna aukna framleiðslu á síðastliðnum þremur mánuðum.
Vonir standa til að þróun í Bandaríkjunum sé í takti við þá í Kína.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 50 punkta við opnun markaða.