Ákveðið hefur verið að grunnatvinnuleysisbætur muni hækka um 13.500 kr. frá 1. janúar næstkomandi í stað 1. mars eins og áætlað hafði verið. Gert hafði verið ráð fyrir að atvinnuleysisbætur hækkuðu um 13.500 kr. þann 1. mars nk. til samræmis við lægstu laun á almennum vinnumarkaði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Þar kemur fram að Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra hefur í samráði við forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra ákveðið að flýta hækkun atvinnuleysisbóta sem átti að koma til framkvæmda 1. mars næstkomandi í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008 og gerð var í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Samhliða munu hámarkstekjutengdar atvinnuleysisbætur hækka um sama hlutfall í samræmi við fyrrnefnda yfirlýsingu og verða þá 242.636 kr. á mánuði í stað 220.729. kr. áður.