Hlutabréf hækkuðu í Evrópu í dag eftir að hafa dansað fyrir ofan og neðan núllið í mest allan dag.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,7%.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 0,8%. Þá hækkaði AEX vísitalan í Amsterdam um 1,1%, DAX vísitalan í Frankfurt um 1% og CAC 40 vísitalan í París um 1,5%.

Í Osló hækkaði OBX vísitalan um 0,1% og í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 0,4%.

Í Bandaríkjunum hafa hlutabréf hækkað það sem af er degi.

Nasdaq hefur hækkað um 0,7% en Dow Jones og S&P 500 um 0,1%.