Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag eftir að hafa lækkað í gær og hafa þau ekki verið hærri í átta vikur. Það voru helst olíu og hrávöruframleiðendur sem leiddu hækkanir dagsins.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 0,9% í morgun og hefur ekki verið hærri síðan 28. febrúar.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,2% og í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 1,4%. Í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 0,4% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 um 1,6%.