Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag og sama er að segja um fyrstu viðskipti dagsins á mörkuðum í Evrópu. DJ Asia-Pacific vísitalan hækkaði um 0,7% og Euronext 100 vísitalan hefur hækkað um sömu hlutfallstölu þegar þetta er skrifað.

Þessi hækkun kemur þrátt fyrir að Toyota hafi birt nýja áætlun fyrir árið sem sýnir þrefalt meira tap en áður hafði verið ætlað, en þar hefur sterkt jen mikið að segja.

Hækkun í Asíu og Evrópu kemur í kjölfar hækkunar í Bandaríkjunum í gær, en allir markaðir bíða nýrra talna um atvinnustig í Bandaríkjunum í dag.