Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag, annan daginn í röð og að sögn Bloomberg fréttaveitunnar voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins líkt og á föstudag.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði í dag um 2,4% og hefur því hækkað um 5,5% á síðustu tveimur viðskiptadögum.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 1,4%, í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan einnig um 1,4% og í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 1,8%.

Í Singapúr lækkaði Straits vísitalan aftur á móti um 0,7% en í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan