Hlutabréf hækkuðu á flestum stöðum í Asíu í dag og er það í fyrsta skipti í fjóra daga sem hlutabréf hækka í Asíu en það voru helst hrávöruframleiðendur og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 0,9% en hafði síðustu þrjá daga lækkað um 5,3%.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,9%, í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 0,5% en í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan um 0,2%.

Í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 1,3% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 1,9%.