Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag binda þannig enda á niðurgöngu MSCI Kyrrahafsvísitölunnar sem lækkað hefur þrjár síðustu vikur.

Vísitalan hækkaði um 0,3% í dag en hefur engu að síður lækkað um 12% síðustu fjórar vikur að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Í Japan lækkaði Nikkei vísitalan aftur á móti um 0,2% en í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 0,3%.

Í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 1,7% og í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 1,1%.

Í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 0,9%.