Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag og voru það helst rafmagnstækjaframleiðendur og bankar sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Þá segir að hækkun dagsins í dag komi í kjölfar þess að Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í landinu og bjartari von um aukinn innflutning til Bandaríkjanna.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 0,3% en hefur engu að síður lækkað um 12% á milli ára.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 0,4%, í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 0,1% og í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 1,3%.

Í Hong Kong lækkaði Hang Seng vísitalan hins vegar um 0,8% og í Singapúr lækkaði Straits vísitalan um 0,2%.