Hlutabréf lækkuðu í Asíu í dag og voru það helst olíufyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar og hækkaði MSCI Kyrrahafs vísitalan um 0,7%.

Í Japan hækkaði Nikkei vísitalan um 1%, í Hong Kong hækkaði Hang Seng vísitalan um 0,8% og í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 0,2%.

Þá hækkaði S&P vísitalan í Ástralíu um 1,1% og í Kína hækkaði CSI 300 vísitalan um 1%.