Hlutabréf hækkuðu í Asíu í dag og voru það japanskir bankar sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Bloomberg fréttaveitunnar.

Mitsubishi, stærsti banki Japans hækkaði um 8,9%. Þá hækkaði næst stærsti bankinn um Mizuho um 7,5%.

MSCI Kyrrahafs vísitalan hækkaði um 0,7%. Þá hækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 0,2% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong um 0,6%.

Í Ástralíu hækkaði S&P 200 vísitalan um 0,3% og í Singapúr hækkaði Straits vísitalan um 0,6%.