Hækkun markaða í Bandaríkjunum í gærkvöldi hafa augljóslega jákvæð áhrif á markaði í bæði Evrópu og Asíu, en í Evrópu eru grænar tölur í upphafi dags og Asíu hækkuðu markaðir.

Nikkei vísitalan í Japan hækkaði um 1,6% í dag og flestar vísitölur hækkuðu í kauphöllum í Asíu og Ástralíu.

Þá hækkuðu mörg fyrirtæki og nokkuð algengt var að sjá hækkun upp á 4-6% hjá fjármálafyrirtækjum í dag. Þannig hækkaði Sumitomo Mitsui Financial Group til að mynda um 6,4% í Japan og stærsti banki Japans, Mitsubishi UFJ Financial Group hækkaði um 4,7%.