Hækkun varð á mörkuðum Evrópu í dag. Bankar og fjármálafyrirtæki hækkuðu í kjölfar góðs uppgjörs BNP Paribas bankans og hrávöruframleiðendur hækkuðu eftir að fréttir bárust af 10 milljarða Bandaríkjadala yfirtökutilboði Xstrata í Lonmin námufyrirtækið.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,9% í dag.

FTSE 100 vísitalan í Lundúnum hækkaði um 0,6%, AEX vísitalan í Amsterdam hækkaði um 1,7% og DAX vísitalan í Frankfurt hækkaði um 0,7%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 1,4% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 0,3%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 1,1%, OMXS vísitalan í Stokkhólmi hækkaði um 1,4% og OBX vísitalan í Osló lækkaði um 2,0%.