Hækkun hefur orðið á Evrópumarkaði í byrjun dags. Beðið er stýrivaxtaákvarðana á mörkuðum, en bæði Seðlabanki Evrópu og Englandsbanki tilkynna ákvarðanir sínar í dag.

FTSEurofirst 300 vísitalan hefur hækkað um 0,5% það sem af er degi.

FTSE 100 vísitalan í Lundúnum hefur hækkað um 0,6%, AEX vísitalan í Amsterdam hefur einnig hækkað um 0,1% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan hækkað um 0,3%.

Í París hefur CAC 40 vísitalan hækkað um 1,1% og í Sviss hefur SMI vísitalan hækkað um 0,4%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,3%, OMXS vísitalan í Stokkhólmi hefur hækkað um 0,8%, en í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 1,6%.