Hlutabréf í Japan hækkuðu í dag þriðja daginn í röð. Mest var hækkunin meðal fjármálafyrirtækja í kjölfar lækkunar kostnaðar í millibankalánum.

Hækkun Mitsubishi UFJ Financial Group og Mizuho Financial Group er sú mesta í tvær vikur.

NIKKEI 225 vísitalan í Tókýó hækkaði um 1,95 og TOPIX hækkaði um 1,8%. HANG SENG í Hong Kong hækkaði um 1,8% og CSI á Kína um 0,2%.

Markaðir í Bandaríkjunum og Evrópu, að Rússlandi undanskildu, er lokaðir í dag vegna jólahátíðarinnar.