Nær öll sú hækkun sem varð á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrr í sumar hefur nú þurrkast út en vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist í júlí 302,8 stig og lækkaði um 1,3% frá fyrri mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Þannig stendur vísitalan nú á svipuðum stað og hún gerði í apríl sl.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað umtalsvert síðan í júlí 2008 þó vissulega hafi hún tekið sveig upp á við frá þeim tíma, t.d. í ágúst í fyrra og nú fyrr í sumar.

Á fyrstu mánuðum þessa árs, þ.e. fram að maí, hafði hins vegar verið lítil breyting á íbúðaverði eins og sjá má á myndinni. Nú er íbúðaverð sambærilegt því sem það var á fyrstu mánuðum þessa árs og hefur lækkað um 0,2% frá því í janúar.

Íbúðaverð hækkaði hins vegar töluvert í júní sl. eða um 1,9% á milli mánaða en lækkar nú aftur sem fyrr segir um 1,3% sem er mesta lækkun á milli mánaða frá því í desember sl.

Íbúðaverð hefur lækkað töluvert eða um 15,3% á föstu verðlagi, frá því í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum).

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 0,1%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 0,2% en lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 2,9%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.