Hlutabréf í Evrópu hafa ýmist hækkað eða lækkað í morgunviðskiptum. Jákvæðar fréttir af uppgjöri olíufélagsins Shell hafa haft góð áhrif á markaði.

FTSEurofirst 300 vísitalan hefur það sem af er degi lækkað um 0,4%.

FTSE 100 vísitalan í Lundúnum hefur hækkað um 0,3%, AEX vísitalan í Amsterdam hefur lækkað um 0,3% og DAX vísitalan í Frankfurt hefur hækkað um 0,5%.

Í París hefur CAC 40 hækkað um 0,2% og í Sviss hefur SMI vísitalan hækkað um 0,8%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan hækkað um 0,4%, OMXS vísitalan í Stokkhólmi hefur hækkað um 0,1% og OBX vísitalan í Osló hefur hækkað um 2,6%.