Vísitala neysluverðs hækkaði um 4,8% síðustu þrjá mánuði sem jafngildir 20,8% verðbólgu á ári. Án húsnæðis er talan  27,4%. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í nóvember 2008 sé nú 327,9 stig og að hún hafi hækkað um 1,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 298,3 stig og hækkaði hún um 1,84% frá október.

Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 3,6% (vísitöluáhrif 0,46%), verð á áfengi og tóbaki hækkaði um 6,5% (0,17%) og verð á fötum og skóm um 3,0% (0,14%).

Verð á húsgögnum, heimilistækjum, heimilisbúnaði o.fl. hækkaði um 3,4% (0,24%), verð á sjónvörpum, dvd-spilurum, tölvum um 6,9% (0,11%) og efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 7,0% (0,29%).

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 17,1% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 19,5%.