Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur hækkað um 5,12% þegar þetta er skrifað, kl. 13:55

Eins og áður hefur komið fram hefur Kaupþing [ KAUP ] hækkað mest fyrirtækja eða um 8,4%. Þá hefur Marel [ MARL ] hækkað um 7,1% og Landsbankinn [ LAIS ] um 4,5%.

Eik banki [ FO-EIK ] hefur lækkað mest eða um 3,5%.

Velta með hlutabréf er um 10 milljarðar það sem af er degi, en þar af eru um 5,5 milljarðar með bréf í Kaupþingi og 2,8 milljarðar með bréf í Glitni [ GLB ].