Lækkun hrávöruverðs ýtti undir hækkun á Bandaríkjamarkaði í dag.
Nasdaq vísitalan lækkaði um 0,1% í dag. Dow Jones hækkaði hins vegar um 0,4% og Standard & Poor´s hækkaði líka um 0,4%.
Standard & Poor´s hefur nú hækkað þrjár vikur í röð.
Olíuverð lækkaði um 1,1% og kostar olíutunnan nú 113,7 Bandaríkjadali.