Hlutabréf hafa hækkað í Bandaríkjunum síðan opnað var fyrir viðskipti á Wall Street fyrir tæplega klukkustund. Hlutabréf lækkuðu strax við opnun en fóru þó að hækka fljótlega og nú, kl. 14:25 hefur Nasdaq hækkað um 0,25%, Dow Jones um 0,2% og S&P 500 um 0,1%.

Í Evrópu eru þó allir markaðir rauðir og hefur FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um tæp 2% það sem af er degi og hefur ekki verið lægri í sex vikur að sögn Reuters fréttastofunnar.

Hlutabréf í orkufyrirtækjum hafa lækkað nokkuð í dag en sem dæmi má nefna að breska olíufyrirtækið BP hefur lækkað um 3% og Shell um 3,5% það sem af er degi.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 1,6%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 1,4% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 1,2%.

Í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 1,7% og í Sviss hefur SMI vísitalan lækkað um 1,6%.

Þá hefur OMXC vísitalan í Kaupmannahöfn lækkað um 1%, í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 2,3% og í Stokkólmi hefur OMXS vísitalan lækkað um 1,7%.