Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Hilmir Ingi Jónsson og kona hans sóttu árið 2006 um einkaleyfi fyrir rafskynjara. Þeir áttu að koma í stað hefðbundinna rafmagnsöryggja og hjálpa fyrirtækjum að fylgjast með raforkunotkun sinni með það fyrir augum að sjá hvar draga mætti úr rafmagnsnotkun. Hilmir er rafvirki að mennt og og uppgötvaði í starfi sínu að skortur var á upplýsingum til bilanaleitar. Hann fékk því hugmyndina að greiningarbúnaði ReMake Electric sem veitir notendum hans upplýsingar um rafmagnsnotkun og getur stuðlað að orkusparnaði til langframa.

ReMake Electric var formlega stofnað árið 2010 og vann sama ár Gulleggið, frumkvöðlakeppni sem þá var haldin á vegum frumkvöðlahússins Innovit. Um svipað leyti komu nýir og öflugir fjárfestar að félaginu, Nýsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest. Síðan þetta var hefur fyrirtækið stækkað mikið og þegar mest lét voru starfsmenn 25 talsins. Eins og Hilmir lýsir sögu fyrirtækisins hefur nú aftur orðið breyting á rekstrinum.

Nánar er fjallað um málið í Orkublaðinu sem fylgdi Viðskiptablaðinu 18. september 2014. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .