Gengi hlutabréfa Air France-KLM Group, fransk-hollenska móðurfélags flugfélaganna Air France, KLM og Servair, lækkaði um 9,8% í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni í París. Lækkunin er rakin til frétta af óvissu um framtíð flugfélagsins, að sögn BBC .
Air France hefur átt í kjaradeilum við starfsfólk sitt undanfarna fjórtán daga og lagði starfsfólkið niður störf í dag eftir að hafa hafnað síðasta kjaratilboði flugfélagsins. Bruno Le Maire, efnahagsráðherra Frakklands, greindi frá því í gær að Air France gæti „horfið“ kæmi til frekari verkfalla. Þá hefur forstjórinn Jean-Marc Janaillac sagt upp störfum. Mest fór lækkunin á hlutabréfaverði Air France-KLM Group í 13,4% í dag.
Air France-KLM Group skilaði 269 milljóna evra tapi á fyrsta ársfjórðungi. Félagið hefur lækkað afkomuspá sína fyrir 2018.
Efnahagsráðherra Frakklands hefur jafnframt gefið út að þrátt fyrir að franska ríkið eigi 14,3% hlut í félaginu muni það ekki koma því til bjargar ef í harðbakka slær.
Athygli vekur að gengi bréfa Icelandair Group lækkaði um 3,93% í 462 milljóna króna viðskiptum í dag. Hefur hlutabréfaverð félagsins ekki verið lægra í fimm ár.