Fjárfestar virðast hafa orðið fyrir vonbrigðum með nýjan iPhone 4s . Hlutabréf Apple lækkuðu um 0,56% í kauphöllinni á Wall Street í gærkvöldi en Nasdaq vísitalan, sem Apple er í, hækkaði um 2,95%.

Mest varð lækkunin á hlutabréfum Apple 2,5% um miðjan dag en hlutabréf á Wall Street tóku hressilega við sér þegar bárust fréttir af því að ESB löndin hyggðust leita leiða til að auka eigið fé evrópska banka.