Hlutabréf gefin út af Atlantic Petroleum, sem skráð er í Kauphöllina hér á landi, hafa verið færð á Athugunarlista með vísan til upplýsinga í tilkynningu með uppgjöri félagsins, sem birt var fyrir helgi, um endurfjármögnun félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en ákvörðunin er tekin á grundvelli greinar í Reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni.