Bank of America, stærsti banki Bandaríkjanna, hefur lækkað mest allra félaga sem eru í Dow Jones vísitölunni síðustu þrjá mánuði. Hefur bankinn lækkað um 47% frá byrjun júlí.

Alcoa er næst í röðinni og hafa hlutabréf álrisans lækkað um 37% fyrir opnun markaða í dag.

Bank of America hefur lækkað mest allra félaga í Dow Jones vísitölunni síðustu 4 ársfjórðunga af 9.