Hlutabréf allra bankanna hafa hækkað í verði það sem af er dags. Mest er hækkunin á bréfum Landsbanka eða 2,57% í 383 milljón króna viðskiptum.
Bréf Kaupþings banka hafa hækkað um 2,31% í liðlega 650 milljón króna viðskiptum.
Hlutabréf Glitnis (Íslandsbanka) hafa hækkað um liðlega hálft prósent. Þá hafa bréf Straums-Burðaráss hækkað um liðlega 1,1%. Mets hækkun bréfa í dag er í Hampiðjunni eða 4,9% en þar að baki eru lítil viðskipti. Aðeins bréf Bakkavarar og Flögu hafa sígið það sem af er dags en lækkunin er óveruleg.
Hlutabréfavísitala Aðallista Kauphallarinnar hefur hækkað 84,19 stig eða 1,47% kl. 11.00 í dag.