Hlutabréf Exista hf. haldast á Athugunarlista með vísan til tilkynninga Exista um fyrirhugaða afskráningu félagsins og yfirtökuskyldu sem myndast hefur í félaginu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en ákvörðunin er tekin á grundvelli skilyrða Nordic Exchange fyrir töku hlutabréfa til viðskipta.

Skuldabréf Exista hf. hafa verið færð af Athugunarlista með vísan til ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins, sem birt var í gær, um að heimila á ný viðskipti með fjármálagerninga félagsins.